Olía
| Verð: | 4.299 ISK |
Vörunúmer: JPV344001
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Höfundur
Vörulýsing
Svikaskáld eru skipuð Þórdísi Helgadóttur, Þóru Hjörleifsdóttur, Sunnu Dís Másdóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Melkorku Ólafsdóttur og Fríðu Ísberg, sem allar hafa getið sér góðs orðs í íslensku menningarlífi. Þær hafa áður gefið út ljóðverkin Ég er ekki að rétta upp hönd, Ég er fagnaðarsöngur og Nú sker ég netin mín. Olía er fyrsta skáldsagan sem hópurinn skrifar í sameiningu.
Vatn og olía eru ósamrýmanleg efni; andstæður sem mætast og blandast ekki saman heldur eru í stöðugri mótstöðu hvor við aðra. Skáldsagan Olía segir af sex konum sem samlagast ekki umhverfi sínu, geta ekki annað en rofið endurtekin mynstur og hringrás vanans, geta ekki annað en hellt olíu á eldinn.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 182
