Orrustan um Salajak
| Verð: | 6.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Skólavörðustígur
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Jarmalandskrónikan 1. hluti
Í fjallakastalanum Salajak, langt norður í landi, vakna vættirnar og breiða út vængi sína eftir langan vetrardvala. Þær hungrar í kjöt, ferskt kjöt ... Á sama tíma strjúka þrír bræður að heiman til að ganga til liðs við árásarherinn sem á að stöðva vættina og binda enda á illvirki þeirra. Þeir ferðast með hernum að Jarmalandi, hyldýpinu handan við Salajak, þar sem gyðjan Hel ræður ríkjum.
Orrustan um Salajak gerist í Svíþjóð á fjórtándu öld og er fyrsta bókin af fjórum í Jarmalandskrónikunni. Æsispennandi fantasía þar sem hetjurnar ungu hverfa út í kalda og myrka veröld til að berjast við vætti, álfa og lindorma með hugprýðina eina að vopni.
Minnir áþreifanlega á Game of Thrones ... Johan Theorin fléttar saman norrænni goðafræði, göldrum og lífinu á miðöldum í blæbrigðaríkri frásögn. Dagens Nyheter
Frábærlega góð og sannfærandi saga, ótrúlega spennandi. Tidningen Kulturvinden
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ungmennabækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 362
