Óvart í sviðsljósi - Stefnulausar senur á leiksviði hversdagslífsins
| Verð: | 7.100 ISK |
Vörunúmer: SVE242601
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Ísafjörður
Höfundur
Vörulýsing
Skopteikningarnar í bókinni eru fyrir alla sem hafa áhuga á húmor og háðsádeilu og vilja líta með sposkum augum á mannlífið, samfélagið og umfram allt á okkur sjálf í hugsanlega svipuðum hlutverkum. Teikningarnar endurspegla írónískar aðstæður og lýsa einstökum grátbroslegum atvikum ? oft sem ímynduðum hugmyndum, en einnig sem upplifuðum og sannsögulegum staðreyndum. Fjölmörg glettileg atriði á leiksviði hversdagslífsins eru hér opinskátt skjalfest. Skopteikningarnar eru vandlega skissaðar skyndimyndir og fígúrurnar ráða ríkjum á leiksviðinu. Þær taka þátt í ýmsum hlutverkum þar sem þær bregða sér á leik við undarlegar aðstæður og flytja gjörningana grandgæfilega, en að því er virðist alveg óvart.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2025
