Passíusálmarnir
| Verð: | 3.759 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Það er ógaman að lenda í skáldum: verða
fyrirvaralaust persóna í skáldverki þar sem allt
er meira og minna fært í stílinn ef því er ekki
hreinlega snúið á haus. Margir þekkja sögu
Einars Kárasonar um Eyvind Jónsson Storm, sem
lengi bjó í Danmörku og var lýst sem heldur
vafasömum karakter. Í þeirri frásögn var svo
margt úr lagi fært að ekki verður lengur við
unað. Rétt skal vera rétt.
Hér grípur Stormur
til varna, skýrir sitt mál og leiðréttir
missagnir. Höfundurinn skýtur þó líka inn sínum
sjónarmiðum og athugasemdum, milli þess sem
vinir og vandamenn Stormsins leggja orð í belg,
og allt er þetta lagt fyrir lesendur þeim til
fróðleiks Í eða að minnsta kosti
skemmtunar.
Passíusálmarnir eru óviðjafnanleg
lesning sem snýr upp á skáldsöguformið; Eyvindur
Stormur og Einar Kárason leiða saman hesta sína
svo úr verður kostuleg og margslungin gamansaga.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
