Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Riddarar hringavitleysunnar

Riddarar hringavitleysunnar

Sækja mynd
Image description
Verð:2.999 ISK
Vörunúmer: PHKPHK_RIDDARAR
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Kringlan Suður
  • Ísafjörður

Höfundur

Ágúst Kristján Steinarrsson

Vörulýsing

Fjórir menn hittast fyrir tilviljun. Allir standa þeir á krossgötum og í hönd fer tími þar sem þeir þurfa að berjast fyrir lífi sínu, heilsu og draumum. Riddarar hringavitleysunnar er sönn, frumleg og ákaflega hreinskilin frásögn af áskorunum og krefjandi veikindum.

Á undanförnum árum hefur orðið umbylting í umfjöllun um geðræn veikindi. Í stað þess að pukrast sé með andlega sjúkdóma hefur hugrakkt fólk stigið fram og lýst upplifun sinni af slíkum veikindum. Þannig hafa í senn opnast augu fólks fyrir raunverulegri stöðu þeirra sem hafa veikst, að þeir eru af öllum toga og úr öllum þjóðfélagshópum, en ekki síður að víða er pottur brotinn varðandi stuðning og aðhlynningu.

Einn af þeim sem hafa stigið fram fyrir skjöldu og tjáð sig á hreinskilinn hátt um reynslu sína af geðhvörfum er Ágúst Kristján Steinarrsson. Í Riddurum hringavitleysunnar lýsir hann nánast ómennskum átökum við veikindi af jafnt líkamlegum sem andlegum toga. Þetta er bók sem virkilega hreyfir við lesandanum, fær hann til að meta sína eigin reynslu og líf upp á nýtt og opnar fyrir skilning á hlutskipti annarra.

„Riddarar hringavitleysunnar er einstök saga af upplifun manns á fjórum æviskeiðum lífsins af erfiðum líkamlegum veikindum og óútreiknanlegum andlegum veikindum. Bókin einkennist af leiftrandi frásagnargleði, berskjöldun, kærleika og dásamlegum húmor! Sannarlega bók sem á erindi til okkar allra.“
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

Ágúst Kristján Steinarrsson (f. 1980) er stjórnunarráðgjafi, jöklaleiðsögumaður og sögumaður. Sögur hans birtast í textum, ljóðum og lögum sem eru alla jafna byggð á persónulegri reynslu hans. Ágúst hefur trú á mátt sögunnar til að ná til fólks og þannig hreyfa við einstaklingum og samfélögum.

Vöruflokkur

    Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
  • Form: Kilja
  • Útgáfuár: 2018
  • Blaðsíðufjöldi: 216
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir