Rusladrekinn
| Verð: | 4.299 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Bergljót Arnalds er einn af okkar vinsælustu
barnabókahöfundum og hefur skrifað fjölda
metsölubóka, þar á meðal Talnapúkann, sögurnar
um Gralla gorm og Stafakarlana. Bergljót er
leikkona og hefur kennt börnum bæði leiklist og
íslensku. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og
viðurkenningar fyrir bækur sínar, þar á meðal
AUÐAR-verðlaunin fyrir frumkvöðlastarf og
nýsköpun.
Rusladrekinn fjallar um agnarponsu
pínulítið skrímsli sem lifnar við í lítilli
tjörn og langar til að gleypa allan
heiminn.
Söguna samdi Bergljót fyrir dóttur
sína sem vildi ólm fá að heyra hana aftur og
aftur. Jón H. Marinósson skreytir söguna
litríkum teikningum þar sem smáatriði fá að
njóta sín.
Í Rusladrekanum tvinnast spenna,
ímyndunarafl og mikilvægur boðskapur saman í
kitlandi skemmtilega sögu.
Vöruflokkur
-
Barnabækur, Barnabækur ísl. - innb.
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2015
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 24

