Sáttamiðlun
| Verð: | 7.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Smáralind
Vörulýsing
Markmið sáttamiðlunar er að vinna úr ágreiningi og deilum, bæta samskipti, sambönd og samvinnu ásamt því að auka traust og virðingu á milli aðila. Í bókinni eru undirstöðuatriði sáttamiðlunar dregin fram og kafað dýpra í einstaka þætti hennar til að veita lesandanum þekkingu, hæfni og getu til að vinna með deilur á uppbyggilegan hátt.
Markmið sáttamiðlunar er að vinna úr ágreiningi og deilum, bæta samskipti, sambönd og samvinnu ásamt því að auka traust og virðingu á milli aðila. Ágreiningur er eðlilegur hluti af lífinu og þótt hann geti stundum tekið á er ekki þar með sagt að hann sé eyðileggjandi afl. Þvert á móti getur hann leitt til framþróunar og veitt nýja sýn.
Í bókinni eru undirstöðuatriði sáttamiðlunar dregin fram og kafað dýpra í einstaka þætti hennar til að veita lesandanum þekkingu, hæfni og getu til að vinna með deilur á uppbyggilegan hátt. Í SÁTTAMIÐLUN má finna fjölda dæma, verkefna og æfinga sem lesendur geta spreytt sig á. Bókin nýtist þeim sem vilja leggja sáttamiðlun fyrir sig en einnig sem hjálpartæki í flestum störfum og í daglegu lífi. Þrátt fyrir ólíkar aðstæður og starfsvettvang er kjarninn sá sami: Að skapa öruggt rými fyrir samtal og að styðja aðila í að ná niðurstöðu sem hugnast öllum.
Höfundar hafa kennt sáttamiðlun í háskólum og hafa mikla reynslu sem sáttamiðlarar vegna ágreinings á vinnustöðum, innan fjölskyldna og á milli fyrirtækja, stofnana og hópa.
