Selfangarinn
| Verð: | 8.599 ISK |
Vörunúmer: MOM550
Vörulýsing
Þetta er fyrsta bókin í hinni áhrifamiklu Reimar-seríu eftir íslensk-finnska rithöfundaparið Tjörva Einarsson og Seppo Mustaluoto, sem báðir eru með bakgrunn úr löggæslu.
Lík af karlmanni með sérkennilega skotáverka finnst í fjöruborðinu í afskekktum firði norður á Ströndum. Líkskoðun leiðir í ljós að tennur hins látna höfðu áður verið meðhöndlaðar handan járntjaldsins og lögregluna grunar að fórnarlambið sé rússneskur flugumaður, kominn ólöglega til landsins frá Finnlandi. Fulltrúi finnsku öryggislögreglunnar er fenginn til aðstoðar í málinu.
