Síðustu dagar Skálholts
| Verð: | 5.299 ISK |
Vörunúmer: SUB9789935493682
Höfundur
Vörulýsing
Síðustu dagar Skálholts segir ósegjanlega sögu af ringulreið við endalok mikilla mektardaga í Sultartungum. Bekkingum skólapilta, lénsveldi Stefánunga, mannfelli förufólks, hinum sannheilaga Eilífagvendi og uppsveitadrjólum sem reyna að koma á byltingu. Sú barátta lendir þó líkt og allt annað í útideyfu fátækra manna sem lúskrast heim í kot sín. Þegar síðasta standsfólkið er farið er öll saga staðarins fólgin í minni einnar karlægrar soðbúrskerlingar, Katrínar Greipsdóttur, sem skynjar loks að stráin, sem áður rembdust öll við að verða eitthvað meira og stærra, eru aldrei nema strá.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Sæmundur-bókaútgáfa
- Blaðsíðufjöldi: 192
