Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Skáldkona gengur laus

Skáldkona gengur laus

Sækja mynd
Image description
Verð:4.199 ISK
Vörunúmer: BJ GI
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Hafnarfjörður

Höfundur

Guðrún Ingólfsdóttir

Vörulýsing

Í þessari bók er fjórum skáldkonum frá 19. öld sleppt lausum úr handritageymslu Þjóðarbókhlöðunnar svo þær megi endurnýja erindi sitt við heiminn. Í kveðskap skáldkvennanna má sjá skýra sjálfsmynd en ekki síður menningarlegan bakgrunn og merkilega afstöðu til náttúrunnar og ímyndunarafls. Þær höfðu einnig ákveðnar hugmyndir um hlutverk sitt sem skálda. Meginerindi sitt töldu þær vera að bera ljós inn í líf fólks, en líka að benda á það sem miður fór. Óhófleg kynhvöt karla er sannarlega ekki splunkunýtt vandamál. Ein þessara kvenna, holdsveik og blind, reis upp í lok aldarinnar og útbjó hálfgerða sjálfshjálparbók í kvæðaformi fyrir aðra sjúklinga á Holdsveikraspítalanum, þrátt fyrir að hún stæði í neðsta þrepi mannfélagsins. Í skáldaheimi kvennanna fjögurra ríkti nefnilega hvorki stéttskipting né feðraveldi.

Bókin er afrakstur margra ára rannsókna Guðrúnar Ingólfsdóttur á handritum kvenna. Guðrún hefur áður sent frá sér bók um skylt efni, Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar. Bókmenning íslenskra kvenna frá miðöldum fram á 18. öld (2016), en fyrir hana hlaut hún Menningarverðlaun DV og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Viðurkenningar Hagþenkis. Þar á undan hafði Guðrún sent frá sér bókina „Í hverri bók er mannsandi“. Handritasyrpur – bókmenning, þekking og sjálfsmynd karla og kvenna á 18. öld (2011).

Vöruflokkur

    Íslenskar bækur, Sagnfræði
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2021
  • Útgefandi: Bjartur Veröld
  • Blaðsíðufjöldi: 426
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir