Sofðu ást mín
| Verð: | 3.759 ISK |
Vörunúmer: JPV337256
Höfundur
Vörulýsing
Barn í Lapplander-jeppa leitar að griðastað
fyrir randaflugu uppi á hálendinu, ungur maður
leitar að orði sem nær yfir ástina, nýbakaður
faðir fer í pílagrímaferð til Lególands og allir
draumar rætast þegar fjárfestir kaupir sér
risaeðlu og heldur einkapartí með Duran
Duran.
Sofðu ást mín geymir sjö raunsæjar og
persónulegar sögur eftir Andra Snæ Magnason.
Saman mynda þær einlægan streng sem fyllir upp í
óvenju fjölbreytt höfundarverk hans.
Bækur
Andra Snæs hafa notið gríðarlegra vinsælda og
unnið til verðlauna innan lands og utan. Fyrir
sléttum tuttugu árum sendi hann frá sér
smásagnasafnið Engar smá sögur sem enn nýtur
mikilla vinsælda. Hér koma loksins nýjar
smásögur eftir þessa einstöku rödd í íslenskum
bókmenntum
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 139
