Á sögustöðum
| Verð: | 4.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Hvað er svona merkilegt við sögustaði? Hér er fjallað um sex þeirra, alla fræga og óumdeilda: Bessastaði á Álftanesi, Hóla í Hjaltadal, Odda á Rangárvöllum, Reykholt í Borgarfirði og Skálholt og Þingvelli í Árnessýslu. Rakin er saga staðanna og reynt að grennslast fyrir um það á hverju hlutverk þeirra byggist.
Hugmyndir okkar um sögustaðina sex mótuðust af þjóðernisrómantík á 19. og 20. öld, aðdáun á gullöld sem gat orðið að gullaldarglýju. Þjóðernishyggjunni fylgdi svo andúð á erlendu valdi og erlendum áhrifum í ýmsum myndum. Þótt nærri 80 ár séu frá því að lýðveldið var stofnað eimir enn eftir af viðhorfum til manna, staða og málefna sem urðu til í sjálfstæðisbaráttunni, þar sem hið innlenda og þjóðlega þykir æskilegt en flest erlent og alþjóðlegt óæskilegt. Það er sannarlega kominn tími á gagngert endurmat.
Þess er að vænta að afstaða margra muni breytast við lestur bókarinnar þar sem almenn menningarsaga fær að vega þyngra en bjöguð stjórnmálasaga.
Helgi Þorláksson (f. 1945) nam sagnfræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan doktorsprófi árið 1992. Hann hefur stundað kennslu og rannsóknir jöfnum höndum og var prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands frá 1995 til 2015. Helgi hefur ritað fjölda greina og bóka um sagnfræðileg efni, fyrst og fremst um sögu Íslands fyrir 1700. Meðal rita hans eru Gamlar götur og goðavald - um fornar leiðir og völd Oddaverja í Rangárþingi (1989), Sjórán og siglingar. Ensk-íslensk samskipti 15801630 (1999), Frá kirkjuvaldi til ríkisvalds í Sögu Íslands VI (2003), Undir einveldi í Sögu Íslands VII (2004, bókarhluti) og um íslenska utanlandsverslun 9001600 í bókinni Líftaug landsins (2017).
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 463
