Sólarhringl
| Verð: | 3.999 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Hér er samband Íslendingsins við heimkynni sín skoðað. Hvernig er best að skafa af bílnum? Hvenær er óhætt að setja sumarblómin út? Er lífið kannski betra á Kanaríeyjum? Hversdagurinn, fornsögurnar, forsælubæir, reikular árstíðir og suðið á eyjunni bláu. Allt er þetta samfléttað daglegu lífi og minningum höfundar svo nálgunin er í senn bæði almenn og einstaklega persónuleg.
Huldar Breiðfjörð segir frá á látlausan og jarðbundinn en íhugulan hátt og hrífur lesandann með sér í ferðalag í leit að upplifunum og einhvers konar svari við spurningunni um hvað það er að vera Íslendingur.
Huldar Breiðfjörð hefur áður sent frá sér bækur á borð við Góðir Íslendingar og Múrinn i Kína. Hann hefur einnig skrifað leikverk og samið handrit að sjónvarpsþáttum og kvikmyndum eins og París norðursins og Undir trénu.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2019
- Útgefandi: Bjartur Veröld
- Blaðsíðufjöldi: 271
