Sólgeislar og skuggabrekkur
| Verð: | 4.199 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Margrét Ákadóttir leikkona er mörgum kunn. Hér segir hún frá viðburðaríku lífshlaupi sínu þar sem skipst hafa á skin og skúrir, eins og titill bókarinnar ber með sér. Margrét ræðir æskuárin í austurbæ Reykjavíkur en þau mörkuðust meðal annars af því að hún var dóttir eins umdeildasta stjórnmálamanns þjóðarinnar og að margir í móðurfjölskyldu hennar voru gallharðir kommúnistar á Siglufirði.
Í bókinni fer Margrét yfir viðburðarík mótunarár sín, ástarsambönd, ferðalög, búsetu í útlöndum, leiklistarferil sinn og athafnasemi ýmiss konar. Hún er mikill frumkvöðull í listmeðferð og er einn fyrsti Íslendingurinn sem lauk slíku námi. Hún segir frá starfi sínu með geðfötluðum og frábærum árangri breskra listmeðferðarfræðinga í vinnu sinni með föngum. Hún lýsir baráttu sinni fyrir betra lífi fyrir fatlaðan son sinn Áka.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 244
