Stormfuglar
| Verð: | 3.999 ISK |
Vörunúmer: JPV339564
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Hafnarfjörður
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Stormfuglar eftir Einar Kárason er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla baráttu íslenskra sjómanna við miskunnarlaus náttúruöfl.
Á miðjum vetri heldur síðutogarinn Máfurinn á karfaveiðar vestur undir Nýfundnalandi. Um borð eru þrjátíu og tveir menn. Þeir fylla skipið í mokveiði en í þann mund sem þeir búast til heimferðar brestur á aftakaveður; sjórinn er drápskaldur og togarinn hleður á sig ísingu í nístandi frosti og ofsaroki.
Klakabrynjan er að sliga drekkhlaðið skipið, hver brotsjórinn af öðrum ríður yfir og þarna úti á reginhafi eru mönnum allar bjargir bannaðar. Frá miðunum í kring berast neyðarköll annarra skipa sem eins er ástatt um. Baráttan er upp á líf og dauða.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 124
