Súrkál fyrir sælkera - Ný útgáfa
| Verð: | 5.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Sýrt grænmeti af ýmsu tagi er stór þáttur í matarhefð margra landa, allt frá Norðurlöndum til Kóreu. Það er ævaforn hefð að sýra og gerja kál og annað grænmeti, ávexti og ýmsan jarðargróður, bæði til að auka geymsluþolið og bæta bragðið, enda er sýrt grænmeti gott með alls kyns mat. Á síðari árum hafa augu manna þó beinst æ meir að hollustunni og rannsóknir hafa leitt í ljós að lifandi og ógerilsneytt súrkál og annað gerjað grænmeti getur stórbætt meltinguna og eflt heilsuna.
Súrkálsdrottningin Dagný Hermannsdóttir hefur haldið fjölda vinsælla námskeiða um allt land á síðustu árum. Hér gefur hún leiðbeiningar um grunnaðferðir, hráefni, tæki og tól, geymslu og notkun, auk fjölda einfaldra sælkerauppskrifta að súrkáli og öðru gerjuðu grænmeti, chutneyi, söltuðum sítrónum, kimchi og fleira góðgæti.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 101
