Sveitin í sálinni
| Verð: | 5.199 ISK |
Penninn Eymundsson
- Ísafjörður
Höfundur
Vörulýsing
Sveitin í sálinni fjallar um horfinn heim í
Reykjavík Í heim sem var lifandi veruleiki
þúsunda Reykvíkinga langt fram eftir 20. öld.
Margir bæjarbúar voru aðfluttir úr sveit og
höfðu með sér á mölina viðhorf og venjur úr
átthögunum. Ýmsum þeirra þótti sjálfsagt að
halda áfram dálitlum búskap en flestir létu sér
nægja að stunda matjurtarækt, þar sem kartöflur
voru í öndvegi. Smám saman höfðu steinsteypa og
malbik þó betur; skepnuhald og matjurtarækt í
stórum stíl létu undan síga og liðu loks undir
lok.
Rakið er í glöggum texta og rúmlega 550
forvitnilegum ljósmyndum hvernig ásýnd
Reykjavíkur tók stakkaskiptum á 20. öld. Þetta
er fróðleg og skemmtileg saga sem varpar ljósi á
vöxt og þróun höfuðborgarinnar þar sem saman
fléttuðust fornir hættir og ný viðhorf.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2014
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 312
