Svo veistu að þú varst ekki hér
| Verð: | 5.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Ísafjörður
- Skólavörðustígur
Höfundur
Vörulýsing
Greinasafnið Svo veistu að þú varst ekki hér: Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi er fyrsta íslenska fræðiritið á sviði hinsegin sögu og er óhætt að segja að bókin sé tímamótaverk í íslenskri sagnfræði. Hún inniheldur sex ritrýndar greinar sem eru fjölbreyttar að efni. Í þeim er fjallað um hinsegin sagnfræði sem fræðilega nálgun á söguna, þýðingar og viðtökur á ljóðum Saffóar á Íslandi, málaferlin gegn Guðmundi Sigurjónssyni sem var dæmdur í fangelsi fyrir kynvillu árið 1924, orðræðu um listakynvillinga á Laugavegi 11 og samkynhneigð sem birtingarmynd hins illa á sjötta áratugnum, sögu og hlutverk bókasafns Samtakanna ´78 og ímynd Íslands sem hinsegin paradísar. Ritstjórar greinasafnsins eru Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger, en auk þeirra eiga greinar í bókinni Kristín Svava Tómasdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson og Þorvaldur Kristinsson.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2017
- Útgefandi: Sögufélag
- Blaðsíðufjöldi: 286
