Tengdadóttirin II Hrundar vörður
| Verð: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Hjálmar Þorgeirsson á Hraunhömrum þykir glæsilegur ungur maður og ekki spillir ríkidæmið á stórbýlinu. Ásta, heimasætan í Heiðar-görðum, er hans útvalda enda hrifust þau hvort af öðru þegar þau sáust fyrst barnung á heiðinni. En sú stórhuga og myndarlega kona Sigurfljóð ætlar sér líka Hjálmar, hvað sem það kostar, og Þorgeiri, föður hans, finnst ríkt kvonfang á stórbýlinu Hálsi mun betri kostur en fátæk kotstelpa. Það er úr vöndu að ráða fyrir Hjálmar og allir hans framtíðardraumar gætu verið í uppnámi. Ekki vill hann valda foreldrum sínum vonbrigðum
Í Tengdadótturinni, sem kom fyrst út 195254 í þremur bindum og átti miklum vinsældum að fagna, segir frá ástum og örlögum jafnt sem daglegu lífi til sveita í byrjun 20. aldar. Guðrún frá Lundi hefur einstakt lag á að gæða persónur sínar lífi svo að lesandinn hverfur um hundrað ár aftur í tímann.
Hrundar vörður er önnur bókin í þessum magnaða flokki en nýrrar útgáfu hefur verið beðið lengi.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 454
