Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Þrír skilnaðir og jarðarför

Þrír skilnaðir og jarðarför

Sækja mynd
Image description
Verð:2.499 ISK
Vörunúmer: HEIG247810
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Hafnarfjörður

Höfundur

Kristján Hrafn Guðmundsson

Vörulýsing

Endurskoðandi lendir í sálarangist vegna teikningar dóttur sinnar. Kolla og Nonni eiga vandræðalega kvöldstund í matarboði í Fossvoginum. Nýfráskilin kona er skilin ein eftir á Tenerife af vinkonu sinni. Að ógleymdri hinni 78 ára Guðrúnu og syni hennar sem reynir að viðhalda lífsvilja beggja með spjalli um Hitchcock-myndir, pottaplöntur og Tinder.

Þrír skilnaðir og jarðarför eftir Kristján Hrafn Guðmundsson inniheldur sjö lauslega tengdar sögur úr samtímanum. Handrit bókarinnar var valið úr tugum handrita til að hljóta Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2019. Í umsögn úthlutunarnefndar segir m.a.: „Sögurnar eru grípandi, persónulýsingar skarpar og textinn er skrifaður á blæbrigðaríku máli […] Andrúmsloftið er létt og leikandi en um leið tekst höfundi að miðla samspili gleði og alvöru af sérstakri næmni.“

Kristján Hrafn Guðmundsson er bókmenntafræðingur að mennt en undanfarin ár hefur hann sinnt ritstörfum og þýðingum samhliða kennslu. Árið 2016 gaf bókaútgáfan Benedikt út þýðingu hans á endurminningabók japanska rithöfundarins Harukis Murakamis, Það sem ég tala um þegar ég tala um hlaup, sem varð í 2.-3. sæti Bóksalaverðlaunanna sama ár.

Vöruflokkur

    Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
  • Form: Kilja
  • Útgáfuár: 2020
  • Blaðsíðufjöldi: 152
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir