Tímagarðurinn
| Verð: | 4.249 ISK |
Vörunúmer: SUB9789935465818
Höfundur
Vörulýsing
Tímagarðurinn er saga af leit. Aðalpersónan Brynjar er á þrítugsaldri, ístöðulaus og sorgmæddur veit hann ekki alveg hvað hann á af sér að gera og veldur bæði móður sinni og kærustu sáru hugarangri. Og sjálfum sér sömuleiðis, enda er líf hans í öngstræti. En þá grípa forlögin og skriftvélavirkinn Beggi í taumana. Við kynnumst reynsluheimi íslenskra karlmanna sem sitja í gömlum Rambler sem malar um vegi landsins með viðkomu í sjoppum, á bryggjum, inn til dala og hjá einkennilegum mönnum sem vanhagar um varahluti í bíla. Þá kynnumst við heimsborgaranum og rónanum Tóta í tauinu sem reynist Brynjari betri en enginn þrátt fyrir gruggugan bakgrunn og sérstaka lífssýn.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2017
- Útgefandi: Sæmundur-bókaútgáfa
- Blaðsíðufjöldi: 244
