Tími til að tengja
| Verð: | 3.999 ISK |
Vörunúmer: BJ BHH
Höfundur
Vörulýsing
Ef litlu jól er réttnefni, hversu lítil eru þau þá í raun og veru? Hvers vegna eiga hrútar svona erfitt með að festa ráð sitt? Hvernig sigrar maður nágranna í jólaskreytingum? Má maður ekki gleðja ellihruman afa á jólum með gjöf sem er kannski ekki mjög kristileg? Hefur Andrés ekkert annað fram að færa en að vera utan gátta? Hvernig stendur á því að Adam Freyr og Mjallhvít Ósk eignuðust sjö dvergvaxna syni?
Öllum þessum knýjandi spurningum og mörgum fleiri svarar Bjarni Hafþór Helgason í sínu fyrsta smásagnasafni, Tími til að tengja. Bráðfyndnar sögur þar sem leiftrandi húmor Bjarna Hafþórs fær að njóta sín og kunnuglegir hlutir eru sýndir í nýju og óvenjulegu ljósi. Hér geta margir á sig brosum bætt!
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2019
- Útgefandi: Bjartur Veröld
- Blaðsíðufjöldi: 210
