Tumi fer til tunglsins
| Verð: | 4.439 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Til tunglsins hefur mig svo lengi langað..."
Tumi litli getur ekki sofnað. Hann þiggur boð karlsins í tunglinu um að skreppa til hans á góðra vina fund" og svífur af stað í rúminu sínu út í vornóttina. Á vegi hans verða forvitnir fuglar, lífsreyndir regndropar, börn frá öllum heimshornum og sjálfur karlinn í tunglinu sem hefur lengi gefið jarðarbúum gætur og á nú mikilvægt erindi við börnin.
Þessari ævintýraferð er hér lýst í skemmtilegu söguljóði og söngvum. Höfundurinn, Jóhann G. Jóhannsson, var um árabil tónlistarstjóri í leikhúsum borgarinnar þar sem hann lagði eitt og annað af mörkum á sviði barnamenningar, t.d. tónlistina við ævintýrasöngleikinn Skilaboðaskjóðuna.
Bókin er listilega myndlýst af Lilju Cardew, sem nýlokið hefur myndlistarnámi í Englandi þar sem hún vann 1.verðlaun í samkeppni um kápumynd fyrir útgáfurisann Penguin.
Vöruflokkur
-
Barnabækur, Ljóð og kvæði
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2024
