Umframframleiðsla
| Verð: | 1.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Höfundur
Vörulýsing
Umframframleiðsla er ljóðræn rannsókn á þeim verkfærum sem nútímasamfélag beitir á innstu kjarna manneskjunnar. Ljóðabálkurinn fylgir leit ljóðmælanda að lausn undan óefni í sálarlífi sínu. Hann ber vandamál sitt á borð þriggja kvenna; trúnaðarvinkonu, sálfræðings og ókunnugrar manneskju á öldurhúsi. Verkið skoðar hlustun og viðbrögð þeirra við óefninu. Sálfræðingurinn hlustar með ákveðinni ætlun eftir vandamálunum til þess eins að snúa á þau. Á öldurhúsinu á sér stað óvirk hlustun þar sem ljóðmælandi og kunningi bíða aðeins eftir því að fá orðið og tala á víxl um raunir sínar. Trúnaðarvinkonan sem er uppfull af internetfróðleik, hlustar hins vegar virkt og veitir hlýju en gefur fjarstæð flökkusöguráð. Inn í frásögnina fléttast ýmsar samgönguleiðir og tilraunir til að orða það sem ekki fæst orðað.
Tómas Ævar Ólafsson er frá Akranesi en býr í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann lauk MA-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og leggur nú loka hönd á MA-próf í ritlist við sama skóla. Hann hefur vakið athygli fyrir dagskrárgerð á Rás 1, auk þess sem skrif hans hafa birst í bókmenntatímaritum, safnbókum og aftan á vínylplötum.
Umframframleiðsla er hans fyrsta ljóðabók.
þú dregur fram óefnið
hún vegur það í hendi sér
það er léttara en hún bjóst við
kvíðinn er neysluvara
eins og allt annað
segir hún
kámugur og klístraður
brýtur hann sér leið inn í kjarnann
eins og veira
undan honum streyma áhyggjur
á færibandi
flakaðar og fullverkaðar
en það ert þú
segir hún
sem ræsir vélina
einn lítill neisti
getur vakið heila verksmiðju
rifrildi í næsta herbergi
opin vínflaska á stofuborði
ósvarað símtal
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 76
