Úr sagnabrunni Hólmsteins Helgasonar
| Verð: | 7.599 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Hólmsteinn Helgason (18931988) ólst upp á Langanesi en fluttist ungur til Raufarhafnar og bjó þar til æviloka. Ungur sótti hann sjóinn frá Skálum á Langanesi og hóf fáum árum síðar eigin útgerð frá Raufarhöfn undir nafninu Hólmsteinn Helgason hf. og er félagið enn í fullum rekstri. Hólmsteinn var forystumaður margra verkefna á sviði félags- og atvinnumála og oddviti Raufarhafnarhrepps í fjölda ára. Hólmsteinn var kjörinn heiðursborgari Raufarhafnarhrepps og sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir félags- málastörf.
Hólmsteinn hóf snemma að skrifa ýmsar minningar frá æsku- árum en einnig sögur og sagnir sem annars hefðu glatast. Sumt af því efni birtist í blöðum, tímaritum og útvarpi en annað hefur hvergi komið fram.
Í bókinni er dregið saman megnið af því sem Hólmsteinn ritaði og sem fullyrða má að allir sem áhuga hafa á þjóðlegum fróðleik munu njóta að lesa.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 429
