Vakir þú?
| Listaverð: | 8.699 ISK |
| Verð: | 6.959 ISK |
| Þú sparar: | 1.740 ISK (-20%) |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Nú breytist allt.
Barið er að dyrum um heita sumarnótt og atlot elskenda trufluð með skelfilegum tíðindum; bróðir konunnar hefur verið myrtur. Fregnin rekur hana og elskhuga hennar af stað í afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar, þar sem tekist er á um líf og dauða, ást og ofbeldi, og vilja mannsins andspænis guði.
Mörgum öldum síðar bíður maður í fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur eftir pípulagningamanni til að skipta um klósett. Hann er ásóttur af minningum og hugsunum um kærleikann og syndina; nágrannar hans eiga erindi við hann, kirkjufeðurnir sækja að honum og í Airbnb-íbúðinni handan götunnar bíða Adam og Eva eftir svari Útlendingastofnunar við hælisumsókn þeirra. En margt getur gerst, dánir menn lifnað við, heitavatnsrör sprungið og eitthvað hræðilegt er í vændum.
Þetta er skáldsaga úr samtímanum en þó byggð á ævi frægustu persónu mannkynssögunnar, uppgjör við guð og menn, en líka það fegursta og versta í okkur sjálfum.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2026
- ISBN: 9789935323729
