Vegamyndir
| Verð: | 4.999 ISK |
Vörunúmer: BENE321404
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Kringlan Suður
- Akureyri
Höfundur
Vörulýsing
Vegamyndir geyma úrval ljóða og smáprósa Óskars Árna frá árunum 1990-2015. Höfundur fer með lesandann á flakk um fásótta jafnt sem fjölsótta staði á Íslandi og skissar upp það sem fyrir augu ber land og fólk sem verður á vegi hans.
Óskar Árni er flandrari og á ferðalögum sínum fetar hann jafnt huglægar slóðir og raunverulegar, hittir Jónas Hallgrímsson, regnvotan á hamborgarastað á Siglufirði og hlustar á Hank Williams á einmanalegu hótelherbergi á Raufarhöfn.
Vegamyndir er systrabók Reykjavíkurmynda frá árinu 2018, úrval borgarljóða Óskars Árna. Höfundur valdi sjálfur ljóð og smáprósa í báðar bækurnar.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 186
