Verjandinn
| Verð: | 3.759 ISK |
Penninn Eymundsson
- Kringlan Suður
Höfundur
Vörulýsing
Hann svaf illa um nóttina en það gerði hann
hvort sem er þegar stór málflutningur var fram
undan. Taugarnar þöndust smám saman, komu í veg
fyrir góðan svefn en héldu honum við efnið þegar
á hólminn var komið. Svefnleysið hafði aldrei
komið að sök.
Stefán Bjarnason
hæstaréttarlögmaður á við ramman reip að draga í
heiftúðugu forræðismáli. Íslensk móðir hefur
flúið með unga dóttur frá Bandaríkjunum til
Íslands í trássi við niðurstöðu dómstóla.
Harðsnúnir ³sérfræðingarÊ eru ráðnir á vegum
föðurins til að ná í barnið. Þeir vingast við
móðurina, beita alls kyns blekkingum og brögðum,
og reyna að nema barnið á brott í skjóli nætur.
En þegar sú aðgerð misheppnast kemur til kasta
verjandans. Þó að Stefán sé vingull í einkalífi
er hann orðsnar, lipur og öruggur í starfi. Og
smátt og smátt afhjúpast sú fortíð sem leitt
hefur til þeirra dramatísku atburða sem skekja
líf allra sem hlut eiga að máli.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
