Vespríus og kaleikurinn
| Verð: | 5.899 ISK |
Vörunúmer: FOK9789935527646
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Í flottasta hverfi, stærstu borgar veraldar, Lyos-borgar, hefur útsjónarsamur þjófur stolið dýrgrip frá valdamiklum töframeistara. En það er bara byrjunin, því engin þorir að kaupa þennan dýrgrip og þjófurinn lendir í ótrúlegasta klandri þegar hann reynir að losa sig við hann. Það virðist sem allir séu á eftir honum, löggæslan, glæpagengin, töfraliðið, vampírurnar og hann þarf á öllum sínum hæfileikum að halda til að sleppa lifandi!
Þeir sem þekkja íslenskar fantasíubókmenntir kannast líklegast við Vegus Vespríus, þann óforbetranlega og orðljóta meistaraþjóf úr bókunum Fimm þjófar og Lavander á ferð. Nú stígur þessi sjarmerandi brjálæðingur fram sem aðalpersóna í verki samið af Jóni Páli Björnssyni og Sunnevu Guðrúnu Þórðardóttur.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Teiknimyndasögur
- Útgáfuár: 2024
