Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Framery One Lounge

Framery One Lounge

Sækja mynd
Image description
Senda fyrirspurn
Vörunúmer: FRY_ONE_VEFUR03

Vörulýsing

Framery er finnskt fyrirtæki sem framleiðir allar sínar vörur í Finnlandi og er leiðandi í þróun og sölu síma- og fundarklefa á heimsvísu. Næðislausirnar frá fyrirtækinu eru mjög vandaðar og uppfylla ýtrustu kröfur þegar kemur að hljóðvist, loftræstingu og kröfum um umhverfisvernd og sjálfbærni við framleiðslu. Síma- og fundarklefar frá Framery eru til sýnis í Pennanum í Askalind 2a Kópavogi. Hafðu samband við okkur; [email protected]

Framery One símaklefinn er 225x122x100 og er fáanlegur í mörgum mismunandi útfærslum.
-Ytra byrði: 8 litir í boði
-Innra byrði: 4 litir í boði
-Borð: Rafhækkanlegt eða föst hæð ? 3 litir í boði
-Teppi: 4 litir í boði
-Þægilegt sæti með armi öðru megin og fastri fóthvílu í gólfi
-Kolefnissía
-Rafmagnstengi + USB C
-Stjórnborð með stillingum fyrir viftu og ljósum

Aukahlutir sem hægt er að fá :
-Jarðskjálftavörn
-LAN tengi
-Hjól undir klefa til að fara hann auðveldlega

Hér er linkur á "configurator" á heimasíðu Framery þar sem þú getur stillt upp klefunum eins og þú vilt hafa þá https://360.frameryacoustics.com/s/create-new-quote

Framery klefarnir eru fullkomlega hljóðeinangraðir, þeir eru í A flokk samkvæmt ISO 23351-1 staðlinum, með 31 desibil hljóðminnkun.
-Hljóðeinangrunin er nægilega mikil svo hægt sé að staðsetja klefana alveg upp að öðrum vinnustöðvum án þess að valda truflun.
-Frábær loftræsting. Skiptir um loftið innan klefans á mínútufresti.
-Frí heimsending og uppsetning á höfuðborgarsvæðinu.
-Góð vara með langan lífstíma og besta notkunargildið.
-Flytur með þér hvert sem þú ferð eins og hvert annað húsgagn og mjög auðvelt að færa til innan sama rýmis.

Framery One er ekki aðeins nýtískulegur, heldur inniheldur hann einnig nýjustu tækni, hljóðeinangrun í hæsta gæðaflokki og hljómburð sem fyrirbyggir allt bergmál. Þú getur búist við mjög sveigjanlegu vinnurými þar sem umhverfishljóð og aðrar utanaðkomandi truflanir verða ekki áhyggjuefni á meðan þú einbeitir þér að næsta verkefni. Bókaðu klefann með dagatalinu í tölvupóstinum, eða stígðu einfaldlega inn í lausan klefa og hann verður tekinn frá sjálfkrafa. Framery One aðlagast að þörfum starfsmannsins. Auðvelt er að stilla bæði borð og sæti. Stjórnkerfi Framery One er innan handar en innan í honum er skjár í hágæðaupplausn þar sem þú getur stillt klefann eftir þínum þörfum.

  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir