Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Framery Six

Framery Six

Sækja mynd
Image description
Senda fyrirspurn

Þetta er sérpöntunarvara. Afhendingartími er 7-10 vikur

Vörunúmer: FRY_SIX-VEFUR

Vörulýsing

Framery er brautryðjandi í hönnun og framleiðslu á hljóðeinangrandi klefum og leiðandi aðili á heimsvísu í sölu og þróun þeirra. Fyrirtækið hefur það að leiðarljósi að auðvelda fólki að einbeita sér að því sem raunverulega skiptir máli og koma hlutum í verk. Næðislausirnar eru mjög vandaðar og uppfylla ýtrustu kröfur þegar kemur að hljóðvist, loftræstingu og kröfum um umhverfisvernd og sjálfbærni við framleiðslu. Síma- og fundarklefar frá Framery eru til sýnis í Pennanum í Askalind 2a Kópavogi.


Framery Six klefinn er fullkomin næðislausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir opin rými, þar sem starfsfólk getur orðið fyrir truflun í starfi eða óskar eftir að komast í ró og næði með símtöl, samtöl, fundi og verkefni. Þetta er snjallklefi, um leið og þú ferð inní klefann þá bókast hann í korter, þú getur þá lengt tímann í stjórnborðinu og aðrir sjá í tölvunni sinni að hann er bókaður. Hann er einnig með „connect“ lausn sem leyfir þér að fylgjast með notkun klefans og hægt að bóka hann í þínu bókunarkerfi (Office, Google o.fl.) Þessi lausn kemur með borði og skjáfestingu. Klefinn er fullkomnlega hljóðeingangraður og er eini klefinn í þessari stærð á markaðnum í dag í A-Flokk samkvæmt nýja ISO23351-1 staðlinum eftir okkar bestu vitund. Þess vegna er hægt að staðsetja hann nálægt vinnustöðvum án þess að trufla fólk að innan eða utan hans. 70% fyrirtækja á Forbes listanum nota Framery klefa og Framery er með 30% markaðshlutdeild á heimsvísu.


Stillanlegt loftflæði og mismunandi ljósastillingar tryggja hreint og gott andrúmsloft á meðan 4G tenging hvers rýmis fyrir sig tengir saman teymi og einfaldar bókun rýma. 8” snertiskjár gerir notendum kleift að nálgast einstaklingsmiðaðar stillingar í háskerpu og með nýjum tæknilausnum á borð við nálægðarskynjara, sjálfvirka loftræstingu og innbyggðan hávaðadeyfi verður til ný lína Framery sem boðar breytta tíma á vinnustöðum samtímans.

Þú stýrir ferðinni enda býðst viðskiptavinum að velja tækni, húsgögn og útlit rýmanna eftir eigin höfði. Rúmlega 3.000 mögulegar litasamsetningar og fjöldinn allur af uppfærslumöguleikum tryggja einstaklingsmiðuð vinnurými handa ólíkum hópum fólks.


Tækniupplýsingar
Auðvelt er að færa klefann innan sama rýmis. Það þarf ekki að taka hann í sundur og sérfræðingar hjá Pennanum sjá um það með sérstakri græju. Klefinn er H232,9xB235,2xD263,2 cm og 718 kg. Klefinn skiptir um loft 187 l/s. Á stjórnskjá á borðinu er hægt að stilla styrkleika viftu og ljóss og bóka klefann (50% betri loftræsting). Það er t.d. Hægt að stilla ljósið sér fyrir myndbandsfundi og verkefnavinnu. Það er líka hægt að bóka klefann með appi sem fylgir. Nemi í klefanum skynjar hita og raka og stillir loftflæði eftir því og ný tækni sem deyfir hávaða með lítt áberandi bakgrunnshljóð svipað til loftflæðis, gerir tal minna skiljanlegt og því minna truflandi.


Innifalið í staðlaðri útgáfu:
- Ytra byrði: Hvítt, grátt eða svart
- Innra byrði: Grátt (Pure Grey)
- Teppi: Grátt (Light grey)
- Borð: Hvítt
- Skjáfesting: Fyrir 50“ skjá MAX
- Rafmagn: 4xRaftengi, 2xUSB-C
- Stjórnborð: Stilla ljós, viftu og bóka klefann


Aukahlutir í boði (kostar aukalega)
- Ytra byrði: Aðrir litir
- Innra byrði: Aðrir litir
- Teppi: Aðrir litir
- Borð: Svart kámfrítt eða Eik
- Tússtafla inní eða utaná
- Snagar f. Yfirhafnir
- Auka USB-C: 1 stk. (MAX 2 stk.)
- HDMI Port
- LAN Port og kapall
- Jarðskjálftavörn

  • Hlekkir: 
    Smelltu hér til að hanna þinn eigin klefa
    Framery bæklingurinn
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir