Herman Miller
Herman Miller er 115 ára bandarískt fyrirtæki sem er leiðandi í þróun á skrifborðsstólum. Fyrirtækið hefur átt í samstarfi við marga virtustu hönnuði heims og hlotið ótal viðurkenningar fyrir hönnun, gæði og sjálfbærni. Skrifborðsstólar frá Herman Miller standast strangar gæðaprófanir, eru allt að 96% endurvinnanlegir og hafa 12 ára ábyrgð.

Skrifborðsstólar
Háir vinnustólar
Aeron
Aeron var fyrsti skrifborðstóll heims með sæti og bak úr engu nema neti. Stóllinn var byltingarkenndur þegar hann kom fyrst á markað árið 1994 þar sem þetta var í fyrsta sinn sem að sterkt teygjanlegt net var notað í skrifborðsstól. Þessi eiginleiki vakti mikla lukku og seldist stóllinn í milljónum eintaka. Enn þá daginn í dag er Aeron talinn einn af allra bestu skrifborðsstólum sem finnast og er hann mest seldi skrifborðsstóll fyrr og síðar. Aeron er með fjórar umhverfisvottanir og er 92% endurvinnanlegur. Við framleiðslu stólsins er notað um það bil 53% af endurunnu hráefni.
Cosm
Cosm skrifborðsstóllinn var valinn einn af 100 bestu uppfinningum ársins 2019 af tímaritinu TIME Magazine. Cosm lagar sig að líkamsbyggingu og þyngd notandans og stillir sig sjálfur. Stóllinn hefur unnið til 8 alþjóðlegra viðurkenninga fyrir framúrskarandi vinnuvistfræðilega eiginleika og hönnun. Cosm er með fjórar umhverfisvottanir og er 95% endurvinnanlegur. Við framleiðslu stólsins er notað um það bil 58% af endurunnu hráefni.
Mirra 2
Mirra 2 er einn af mest seldu skrifborðsstólum Pennans. Hann er einstaklega þægilegur með sérhönnuði neti í setu og sveigjanlegu gataplasti í baki. Stóllinn hefur fjölda stillimöguleika. Mirra 2 er með fjórar umhverfisvottanir og er 94% endurvinnanlegur. Við framleiðslu stólsins er notað um það bil 50% af endurunnu hráefni.
Embody
Yfir 20 sérfræðingar úr mismunandi heilbrigðisgreinum komu að hönnun og þróun Embody stólsins. Skrifborðsstóllinn veitir einstaklega góðan bakstuðning og er með fjölmarga stillimöguleika til að koma til móts við líkamsbyggingar þeirra sem í stólnum sitja. Embody er með tvær umhverfisvottanir og er 95% endurvinnanlegur. Við framleiðslu stólsins er notað um það bil 44% af endurunnu hráefni.
Smelltu hér til að skoða Embody
Sayl
Sayl er nútímalegur, vel hannaður og hefur allar helstu stillingar. Verkfræðilegu eiginleikar og útlit Golden Gate brúarinnar í San Fransisco veitti hönnuðinum mikin innblástur við hönnun stólsins. Stóllinn hefur unnið til þriggja alþjóðlegra viðurkenninga fyrir framúrskarandi hönnun. Sayl er með tvær umhverfisvottanir og er 92% endurvinnanlegur. Við framleiðslu stólsins er notað um það bil 35% af endurunnu hráefni.










