Inka Lounge Chair ash/gray
Þetta er sérpöntunarvara. Afhendingartími er 7-10 vikur
| Verð: | 466.000 ISK |
Hönnuður
Vörulýsing
Inka hægindastóll
Inka línan er klassísk íslensk hönnun. Varan er endingargóð og hefur lifað gegnum fleiri kynslóðir.
Form Inka einkennist af tveim ferningum, tengdum saman með láréttri línu sem skapa form sófans og stólsins. Armarnir eru breiðir, með pláss fyrir olnboga, góða bók eða kaffibolla.
Gunnar Magnússon er eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu og húsgögn hans hafa vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi. Inka línan er ein af tímalausu og klassísku vörulínum hans, og sú fyrsta sem FÓLK hefur endurútgefið.
Vörulínan er upprunalega hönnuð árið 1962 og FÓLK hefur nú hafið endurútgáfu á vörum Gunnars, í samræmi við sjálfbærni- og hringrásaráherslur fyrirtækisins.
FSC vottuð Eik eða Askur
Textíltýpa: Val um gæðaáklæði, Hallingdal frá Kvadrat eða Astrid
Stærð: 65 x 73 x 70 cm
Framleitt í Evrópu
Varan kemur flatpökkuð.
- Útgáfuár : 1962




