Kata kilja
| Verð: | 3.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Höfundur
Vörulýsing
Daginn sem Vala hvarf var heiðskírt. Ég fór heim
úr vinnu síðdegis og líklega hefur allt gengið
sinn vanagang á spítalanum, að minnsta kosti man
ég ekki eftir neinu sérstöku nema þessu:
himinninn var svo ægilega blár og djúpur, eins
og ég gæti tekist á loft og horfið í hann ef ég
færi ekki varlega. Ef ég svo mikið sem hrasaði.
En kannski hugsaði ég þetta ekki fyrr en seinna.
Menntaskólastelpa fer á ball og hverfur
sporlaust. Mamma hennar er fullviss um að hún sé
á lífi en hefur ekkert í höndunum. Nema orðljót
bréf með órekjanlegri undirskrift. Nema
dúkkuhúsið. Þangað til nafnlaus maður hringir í
lögregluna og tilkynnir um lík í gjótu utan við
borgina. KATA er saga um glæp og eftirköst hans,
um óskiljanlega grimmd, ærandi sorg og stríðið
milli kynjanna þar sem einungis annað þeirra
hefur verið gerandi Í þangað til núna. Að venju
nálgast Steinar Bragi viðfangsefni sitt af
vægðarleysi og snertir lesendur djúpt.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2015
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 515
