Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  • Algengar spurningar
  • Atvinnuumsókn
  • Blogg
  • Hafa samband
  • Dreifingarmiðstöð og verkstæði
  • Ritfanga- og húsgagnalager
  • Saga Pennans og Eymundsson
  • Sérpöntun
  • Siðareglur
  • Starfsfólk
  • Skilareglur
  • Skilmálar vefverslunar
  • Stefnur
  • Umsókn um reikningsviðskipti
  • Verklagsreglur
  • Verslanir Pennans Eymundsson
  • About us
Valmynd
Sýna valmynd
  1. Um Pennann Eymundsson
  2. Saga Pennans og Eymundsson

Saga Pennans og Eymundsson

Þann 29. nóvember árið 1872 opnaði athafnamaðurinn Sigfús Eymundsson fyrstu bókaverslunina á Íslandi. Sigfúsi var margt til lista lagt. Hann nam bókband í Kaupmannahöfn, lærði ljósmyndun í Bergen og opnaði fyrstu ljósmyndastofuna í Reykjavík árið 1867. Sigfús var lengi umboðsmaður Allan-skipafélagsins sem bauð flutninga til Norður-Ameríku og má ætla að hundruðir eða þúsundir Íslendinga hafi flust vestur um haf með milligöngu Sigfúsar. Það var hins vegar Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar sem átti eftir að festa nafn hans rækilega í sessi hjá þjóðinni.

Hestar í Lækjargötu, fyrir utan Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Sigfús tók sjálfur myndina.

Sigfús keypti húsið á horni Austurstrætis og Lækjargötu, þ.e. Lækjargötu 2, árið 1871 en húsið var reist árið 1852. Sigfús ætlaði versluninni fyrst í stað lítið húsnæði á götuhæðinni, en hún dafnaði jafnt og þétt og árið 1875 lét hann byggja hæð ofan á suðurhluta hússins. Á árunum 1882-83 stækkaði hann húsið frekar og lengdi það. Sjálfur bjó hann ásamt konu sinni, Sólveigu Daníelsdóttur, á efri hæðinni og rak þar ljósmyndastofu. Þannig stóð húsið nánast óbreytt til vorsins 2007 er það brann til kaldra kola í stórbruna á svæðinu. Húsið hefur síðan verið endurbyggt í svipaðri mynd og það var árið 1883. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar var til húsa í Lækjargötu 2 til ársins 1920.
Bókaverslunin naut frá upphafi mikils trausts og virðingar og setti mark sitt á bæjarlífið. Þangað lagði fólk leið sína til að kaupa bækur, ritföng, miða á viðburði og ýmislegt annað. Sigfús hóf bókaútgáfu árið 1886 og lagði áherslu á vandaðar bækur sem höfðu ótvírætt menningargildi sem og nytsamar fræðibækur fyrir almenning. Sigfús flutti jafnframt inn ýmsar vörur og var til dæmis fyrstur manna til að flytja inn peningaskápa, sjálfblekunga og ritvélar. Hann var líka fyrstur til að selja póstkort á Íslandi, en ljósmyndirnar á þau tók hann sjálfur.

Bestu og fullkomnustu ritvélarnar auglýstar af Sigfúsi Eymundsson.

Nýir eigendur

Árið 1908 bárust Pétri Halldórssyni fregnir af því að heilsu Sigfúsar væri farið að hraka og hann hygðist selja verslunina. Pétur keypti bæði verslunina og bókaútgáfuna og tók við starfseminni 1. janúar 1909. Sigfús Eymundsson lést aðeins tveimur árum síðar.

Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar hélt áfram að blómstra undir stjórn Péturs. Líkt og Sigfús rak hann bæði fyrirtækin af miklum menningar- og myndarbrag, og jók bókaútgáfuna til muna. Árið 1920 keypti Pétur steinhúsið að Austurstræti 18 og færði verslunina þangað í stærra og nýtískulegra húsnæði – þó í hjarta borgarinnar sem endranær.

Penninn stofnaður

Árið 1932 stofnaði Baldvin Pálsson Dungal Pappírs- og ritfangaverslunina Pennann, ásamt bróður sínum Halldóri. Verslunin var til húsa í Ingólfshvoli, á horni Pósthússtrætis og Hafnarstrætis. Skuggi heimskreppunnar hvíldi yfir viðskiptalífinu og fáir spáðu fyrirtækinu langlífi. Þeir bræður höfðu dvalist langdvölum erlendis og höfðu kynnst ýmsum nýjungum í verslunarrekstri. Til að mynda var Penninn lengi eina verslunin sem seldi minjagripi, en staðsetningin hentaði vel til að þjóna ferðamönnum sem komu til landsins við Steinabryggjuna gömlu. En fyrst og fremst fékkst Penninn við innflutning á pappírsvörum og ritföngum og voru þýsku Leitz skrifstofuvörurnar meðal þeirra fyrstu sem Penninn fékk umboð fyrir..

Gömul auglýsing frá Pennanum, Ingólfshvoli.

Árið 1937 keypti Baldvin Dungal hlut bróður síns í Pennanum og hélt áfram uppbyggingu fyrirtækisins ásamt fjölskyldu sinni. Á næstu árum mátti reglulega sjá auglýsingar frá Pennanum í helstu blöðum landsins um blokkstatív, eilífðarblokkir, blekbyttur, pennahaldara, ritsett, og óheyrilega ódýra tölusetningarstimpla.

Mikil tímamót urðu árið 1959 þegar Almenna bókafélagið keypti Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Búðin var flutt tímabundið í gamla Morgunblaðshúsið að Aðalstræti 6 því ákveðið var að rífa gamla húsið að Austurstræti 18 og byggja þar nýtt. Næstu árin var mikil gróska í útgáfustarfseminni og gaf AB út fjölda merkra bóka eins og ritsafn Gunnars Gunnarssonar og heildarútgáfu Guðmundar Kambans. Þann 19. nóvember 1960 var bókaverslunin aftur komin á sinn gamla reit í nýju húsi að Austurstræti 18 – þar sem hún stendur enn þann dag í dag.

Næsta kynslóð tekur við

Árið 1969 urðu kaflaskil í sögu Pennans þegar Baldvin Dungal, eigandi fyrirtækisins, lést snögglega. Sonur hans, Gunnar B. Dungal, tók þá við rekstrinum rúmlega tvítugur að aldri. Baldvin hafði byggt upp blómlegt fyrirtæki og rak á þessum tíma verslanir í Hafnarstræti 18, Laugavegi 84 og Laugavegi 176. Fimm árum síðar, árið 1974, opnaði Penninn verslun sína í Hallarmúla 2 og þegar fram liðu stundir varð sú verslun flaggskip fyrirtækisins.

Gestir í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar í jólabókaflóðinu 1972, á 100 ára afmæli verslunarinnar.

Horft til framtíðar

Á 9. áratug síðustu aldar, rúmum 110 árum eftir opnun Bókaverslunar Sigfúsar, tók Eymundsson að stækka allverulega. Á árunum 1986-1990 opnuðu fjórar bókaverslanir til viðbótar þeirri gamalgrónu í Austurstrætinu. Í Mjódd opnaði Eymundsson verslun sína árið 1986, í Kringlunni árið 1987, á Eiðistorgi árið 1989 og á Hlemmi árið 1990.

Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar var nú sannkallað menningarsetur í miðri borg og miðpunkturinn í bæjarlífinu og smám saman einnig í úthverfum borgarinnar. Þar átti fólk stefnumót við íslenska menningu og alþjóðlega strauma, eins og sagði í auglýsingu fyrirtækisins haustið 1989.

9. áratugurinn átti eftir að reynast mikið breytingaskeið hjá Pennanum. Árið 1982 fékk Penninn bóksöluleyfi, en slíkt leyfi er nauðsynlegt til að fá bækur í umboðssölu frá útgefendum, og opnaði bókadeild í verslun sinni í Hafnarstræti. Sama ár hóf Penninn jafnframt innflutning á skrifstofuhúsgögnum. Með aukinni tölvunotkun þurfti Penninn að mæta þeirra þróun, s.s. með auknu framboði af nýjum ritföngum og rekstrarvöru fyrir „tölvuútskriftir“. Árið 1987 var opnuð stórverslun á þremur hæðum að Austurstræti 10, en versluninni í Hafnarstræti var lokað. Ný verslun var einnig opnuð í Kringlunni sama ár.

Það var árið 1990 sem Penninn og Eymundsson leiddu saman hesta sína í fyrsta sinn. Verslanirnar tvær fóru undir sama þak þegar ritfanga- og gjafavörudeild Pennans var flutt í kjallara Austurstrætis 18 og fyrirtækin gerðu með sér samkomulag um sölu á bókum. Penninn átti að bjóða fjölbreytt úrval ritfanga, teiknivara og gjafavöru ásamt landsins mesta úrvali af pennum en Eymundsson skyldi sjá um íslenskar og erlendar bækur, tímarit og blöð.

Þetta sama ár seldi Almenna bókafélagið Eymundsson. Reksturinn hafði vægast sagt gengið brösuglega og tók prentsmiðjan Oddi verslanirnar upp í skuld. Voru Eymundsson verslanirnar svo seldar samdægurs til Iðunnar bókaútgáfu. Með þessum samruna var Iðunn orðinn stærsti bóksali landsins, en útgáfan átti fyrir þrjár bókabúðir. Ári seinna opnaði Eymundsson sína sjöttu verslun í Borgarkringlunni. Iðunn hélt þó áfram að reka Eymundsson með miklu tapi og árið 1992 keypti Oddi verslanirnar aftur.

Árið 1992 rak Penninn bæði verslanir og heildsölu. Penninn annaðist til að mynda dreifingu og sölu ritfanga í verslunum Hagkaupa, ýmissa kaupfélaga og bókabúða um land allt. Þetta ár stofnuðu Gunnar B. Dungal og eiginkona hans, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Listasjóð Pennans. Sjóðnum var einkum ætlað að styrkja unga myndlistarmenn, sem voru að feta sín fyrstu spor á listabrautinni, og kaupa verk eftir þá.

Penninn og Eymundsson í eina sæng

Þau tímamót urðu í apríl 1996 að Penninn, með Gunnar B. Dungal í fararbroddi, keypti verslanir Eymundsson í Austurstræti, Kringlunni og Borgarkringlunni. Hinar verslanir Eymundsson, á Eiðistorgi, Hlemmi og í Mjódd, voru áfram reknar undir öðrum nöfnum. Þetta sama ár opnaði Penninn verslun að Strandgötu 3 í Hafnarfirði, þar sem áður var Bókabúð Olivers Steins. Og áður en árið var úti höfðu Penninn og Egill Guttormsson sameinað krafta sína, en bæði fyrirtækin höfðu um áratuga skeið flutt inn skrifstofuvöru og húsgögn og höfðu mikla reynslu á því sviði.

Árið 1998 samþykkti borgarráð að heimila Pennanum að útbúa bókakaffi í versluninni í Austurstræti 18, en fyrirtækið hafði keypt fasteignina á vormánuðum. Þar með varð til eitt ástsælasta bókakaffi landsins sem lifir góðu lífi enn í dag. Á næstu tveimur árum keypti Penninn bóka- og ritfangaverslun Bókvals á Akureyri, GKS trésmiðju og ritfanga- & tölvuverslunina Griffil. Griffill var rekin í Skeifunni til ársins 2014 þegar verslunin gjöreyðilagðast í stórbruna.

Umsvif Pennans margfölduðust og með kaupunum á Eymundsson færði fyrirtækið sig í auknum mæli yfir í bóka- og tímaritasölu. Í árslok 2002 voru verslanir fyrirtækisins orðnar tíu talsins, auk þess sem félagið átti í samstarfi við fimm búðir á landsbyggðinni. Starfsmönnum hafði fjölgað úr 60 í 220.
Árið 2003 var samið um kaup á fjórum af Bókabúðum Máls og menningar. Um var að ræða verslanirnar að Laugavegi 18, í Bankastræti, í Mjóddinni og Síðumúla. Árið 2005, þegar 400 fm. verslun Pennans Eymundsson var opnuð í Hallarmúla 2-4, var Bókabúð Máls og menningar í Síðumúla lokað.

Penninn seldur

Árið 2005 dró til tíðinda þegar Gunnar Dungal seldi fyrirtækið. Þeir Kristinn Vilbergsson og Þórður Kolbeinsson fóru fyrir fjárfestum sem keyptu Pennann og varð sá fyrrnefndi forstjóri fyrirtækisins.

Sama ár opnaði Penninn verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar undir nafni Eymundsson og keypti bókaverslanir á Akranesi, Ísafirði og í Keflavík. Ári síðar gerði Penninn leigusamning við Reykjavíkurborg um Alliance húsið og eftir miklar endurbætur opnaði húsgagnaverslunin Saltfélagið, í eigu Pennans, Lumex og Reykjavík Design Center. Árið 2007 keypti Penninn svo helming hlutafjár í húsgagnaversluninni Habitat.

Óhætt er að segja að nýir eigendur hafi verið virkir þáttakendur í útrásinni á árunum fyrir hrun. Árið 2006 festu þeir kaup á 73% hlut í lettneska skrifstofufyrirtækinu AN Office. Árið 2007 keypti félagið finnska fyrirtækið Tamore sem einnig sérhæfði sig í sölu og dreifingu á skrifstofuvörum. Eigendur Pennans létu ekki þar við sitja heldur keyptu þeir líka Melna Kafija, kaffiframleiðslufyrirtæki í Lettlandi, og 80% hlutafjár í húsgagnafyrirtækinu Coppa, einnig í Lettlandi. Árið 2008 keypti Penninn 51% hlut í írsku kaffihúsakeðjunni Insomnia.

Í kjölfar efnahagshrunsins var ljóst hvert stefndi hjá Pennanum. Eftir viðræður við eigendur félagsins tók Nýja Kaupþing yfir rekstur Pennans 20. mars 2009. Viku síðar lýsti bankinn Pennann svo gjaldþrota, stofnaði nýtt félag, Pennann á Íslandi, með nýrri kennitölu utan um rekstur félagsins á Íslandi og benti kröfuhöfum á að lýsa kröfum í búið.

Nýja Kaupþing hófst þegar handa við endurskipulagningu félagsins, meðal annars með samningum við kröfuhafa og birgja. Stjórnendur Pennans gerðu einnig viðamiklar breytingar á framkvæmdastjórn félagsins.

Þrátt fyrir þunga stöðu var ekki annað að sjá en að lífið í verslunum Pennans gengi sinn vanagang. Íslendingar eru bókaþjóð og þrátt fyrir erfiða tíma vantaði fólki ennþá bækur, blöð, tímarit og ritföng.

Áfram veginn

Í janúar 2012 bauð Arion banki til sölu allt hlutafé í fyrirtækinu. Margir lýstu yfir áhuga á kaupunum en ekki dró til tíðinda fyrr en í júní 2012 þegar hópur fjárfesta undir forystu Ingimars Jónssonar, Ólafs Stefáns Sveinssonar og Stefáns D. Franklíns keyptu fyrirtækið.

Þremenningarnir höfðu allir tengsl við Pennann frá þeim tíma sem Gunnar B. Dungal rak fyrirtækið. Ingimar var framkvæmdastjóri þess í mörg ár og Stefán endurskoðandi í yfir tvo áratugi. Ólafur var svo viðskiptafélagi Ingimars.

Á árunum 2014-16 voru allar verslanir fyrirtækisins sameinaðar undir vörumerki Pennans Eymundsson, en fyrst þeirra var ný verslun við Laugaveg 77 sem opnaði sumarið 2014. Á þessum árum endurbætti fyrirtækið einnig verslanir sínar og stækkaði í Leifsstöð, Mjódd og Smáralind.

Í lok maí 2016 festi Penninn kaup á Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík. Sú rótgróna verslun var stofnuð árið 1909 og hafði alla tíð þjónað Þingeyingum með bækur, ritföng og gjafavöru. Þetta var því kærkomin viðbót við flóru verslana Pennans Eymundsson og styrkti enn frekar stöðu fyrirtækisins á landsbyggðinni.

Nýir tímar og aukin umsvif

Samhliða auknum fjölda ferðamanna sem lögðu leið sína til landsins blés Penninn til stórsóknar og árið 2016 voru innkaup félagsins á minjagripum og ferðamannavörum endurskipulögð frá grunni með eigin hönnun og framleiðslu. Árið 2018 var vörulína Icelandic Magic keypt, en fyrirtækið framleiðir boli, húfur, vettlinga og annan fatnað. Það sama ár tók Penninn einnig yfir fjórar verslanir The Viking.

Í september 2019 tók Penninn yfir kaffihúsarekstur Te & Kaffi í fjórum verslunum félagsins, á Akureyri, í Austurstræti 18, á Skólavörðustíg og Laugavegi 77. Rekstur kaffihúsa eiga mikla samleið með annarri starfsemi Pennans og nýttist reynslan af þeim rekstri einstaklega vel þegar opnuð var ný verslun Pennans Eymundsson í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2022.

Árið 2020 keypti Penninn HB heildverslun, sem sérhæfir sig í leikföngum og matvöru. Með kaupunum styrkti félagið verulega stöðu sína á heildsölumarkaði og eru nú allar helstu matvörukeðjur landsins stórir viðskiptavinir Pennans. Nýjasta viðbótin við vöruúrval Pennans eru gjafavörur og húsgögn frá danska fyrirtækinu HAY.

Penninn rekur nú 16 verslanir um land allt undir nafninu Penninn Eymundsson. Þá rekur félagið húsgagnaverslun, fyrirtækjaþjónustu og heildverslun. Jafnframt rekur Penninn þrjár ferðamannaverslanir undir nafninu The Viking og eina undir nafninu Islandia.

  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir