Netið innbundin
| Verð: | 3.759 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Sonja heldur að hún sé loksins sloppin úr
gildrunni, frá samviskulausum eiturlyfjamógúlum
sem héldu henni í heljargreipum. En þegar
drengurinn Tómas, hennar dýrasta djásn, er
tekinn frá henni enn á ný er fjandinn
laus.
Bankakonan Agla bíður dóms fyrir
fjármálamisferli en fleira hvílir á henni:
valdamiklir menn eiga hönk upp í bakið á henni
og Sonja, sem hún elskar svo heitt, vill ekki
sjá hana.
Atferli Sonju veldur Braga tollverði
líka áhyggjum; hefur hann misreiknað sig? Taugar
þeirra allra eru þandar til hins ýtrasta Í og
útilokað að allt fari vel.
Netið eftir Lilju
Sigurðardóttur er æsispennandi glæpasaga,
sjálfstætt framhald Gildrunnar sem kom út í
fyrra og var afar vel tekið.
Bresk og frönsk
forlög hafa þegar tryggt sér útgáfuréttinn af
Gildrunni og Netinu en það verður að telja
fátítt að útgáfuréttur á óútgefinni bók hafi
þegar verið seldur til tveggja landa fyrir
útgáfu á Íslandi. Að auki hefur Gildran verið
seld til Frakklands, Tékklands og Noregs.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 353
