Víghólar
| Verð: | 3.699 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Vinnuvélar verktakafyrirtækis eru stórskemmdar í
skjóli nætur. Illa útleikin lík finnast á
nokkrum stöðum á landinu. Margt bendir til að
þarna séu að verki aðilar úr öðrum heimi.
Lögreglan fær Bergrúnu Búadóttur huldumiðil til
að aðstoða við rannsókn málsins. Fljótlega kemur
í ljós að myrk og máttug öfl seilast til aukinna
valda bæði í Mannheimi og Hulduheimi. Bergrún og
Brá, tvítug dóttir hennar, leggja af stað í
ferðalag sem fljótlega umbreytist í háskaför þar
sem þær þurfa að kljást við óútreiknanlega og
máttuga andstæðinga. Samhliða því myndast mikil
spenna í sambandi mæðgnanna sem verður til þess
að leiðir þeirra skilja. Emil Hjörvar Petersen
er helsti frumkvöðull á sviði furðusagna hér á
landi. Hann hlaut mikið lof fyrir þríleik sinn
Saga eftirlifenda.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Bjartur Veröld

