Ljóð muna rödd
| Verð: | 4.999 ISK |
Vörunúmer: JPV116567
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Skólavörðustígur
Höfundur
Vörulýsing
Orð og draumar
Orð og draumar
hafa alltaf farið
saman
í lífi mínu
Lengur en ég man
Nú bíður
hann færis
þessi sem ég vil ekki nefna
bíður
færis ég finn það
Kemst ekki nær mér
meðan
ágústbirtan
breytir draumum
í orð
breytir
orðum
í drauma
Hér yrkir Sigurður um
grundvallaratriði lífsins: jörð, eld, loft og
vatn, en líka raddir og skugga, ljós og myrkur,
hvítar nætur og heilaga gleði. Hugarflugi og
sköpunargleði er teflt af fullri einurð fram
gegn valdi eyðingar og dauða og rödd ljóðsins
ómar áfram í höfði lesanda lengi eftir
lesturinn.
Ljóð muna rödd er ein persónulegasta
og áhrifamesta ljóðabók sem Sigurður Pálsson
hefur sent frá sér.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 81

