Uppgjör
| Verð: | 3.999 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Jack Reacher er oftast einn á ferð og enginn segir honum fyrir verkum. En þegar félagar úr hernum biðja um aðstoð eftir furðulegt banatilræði við Frakklandsforseta flýgur hann yfir hafið, og í París hefst leit að tilræðismanninum. Sem gæti mjög vel verið gamall kunningi. Eða reyndar fjandmaður. Og heimsins besta skytta.
París reynir á þolrifin og skotmaðurinn kemst undan. Í London er leiðtogafundur í uppsiglingu og allir á nálum þar sem leyniskytta gengur laus. Og þangað
heldur Reacher nú í fylgd Casey Nice, ungrar konu sem á að aðstoða hann. Eða líta eftir honum. Saman eru þau magnað teymi, en liðið sem þau eiga í höggi
við er sannarlega ekkert að grínast.
Uppgjör er ellefta bókin um um JacK Reacher eftir Lee Child sem kemur út á íslensku.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 404
