Krossgötur álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi
| Verð: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Höfundur
Vörulýsing
Íslensk þjóðtrú geymir fjölmargar frásagnir af ákveðnum siðum sem menn skulu viðhafa í umgengni sinni við álfa og huldufólk. Þessir siðir hafa haldist merkilega óbreyttir í gegnum aldirnar að minnsta kosti sá hluti þeirra sem snýr að skilyrðislausri virðingu fyrir bústöðum álfa og huldufólks. Nú sem fyrr hafa slík bannhelg svæði áhrif á framkvæmdir manna, allt frá vegalagningu til byggingu sólpalla.
Í þessari bók eru fimmtíu og fjórir álfasteinar, huldufólksklettar, dvergasteinar og aðrir bannhelgir staðir um allt land, teknir til skoðunar í máli og myndum, um leið og hinn forni átrúnaður á nábýli mannfólks og yfirnáttúrulegra vætta er settur í samhengi við sögu, listir og fræði. Krossgötur er einstök lesning fyrir alla þá sem hafa áhuga á einni þekktustu þjóðtrú Íslendinga og þeim sýnilegu áhrifum sem hún hefur í borg og sveit.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Bjartur Veröld
