Kvika
| Verð: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Lilja er ung og ástfangin, svo ástfangin að hún er tilbúin að leggja allt í sölurnar til að þóknast manninum sem hún elskar. En þegar hún hættir að setja honum mörk missir hún tökin á raunveruleikanum. Er hægt að leysast hreinlega upp af ást?
Hér er dregin upp mögnuð, raunsönn mynd af andlegu ofbeldissambandi, lituðu af klámvæðingu samtímans, og skelfilegum afleiðingum þess fyrir unga konu. Kvika er ljóðrænn en baneitraður kokteill af firrtri ást, sjálfsblekkingu, sársauka og grimmd sem seint á eftir að líða úr minni.
Þóra Hjörleifsdóttir hefur tekið þátt í að skrifa og gefa út bækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd (2017) og Ég er fagnaðarsöngur (2018) með Svikaskáldum. Hún býr í Reykjavík og er með meistaragráðu í ritlist. Kvika er fyrsta skáldsaga hennar.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2019
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 134
