Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Prestaköll sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I-II

Prestaköll sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I-II

Sækja mynd
Image description
Verð:11.199 ISK
Vörunúmer: SOG9789979876335
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Ísafjörður

Höfundur

Björk Ingimundardóttir

Vörulýsing

Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I-II eftir Björk Ingimundardóttur er grundvallarrit um félagsgerð og samfélag fyrri alda. Í tíu aldir hefur kirkjan sinnt mikilvægu hlutverki í lífi landsmanna. Saga hennar er frá kristnitöku samofin sögu þjóðarinnar - tíundarkerfið tengdist prestum og kirkjunni og fæðingar, skírnir, giftingar, andlát, veikindi og heimilisfesta voru skráð í bækur kirkjunnar. Skjalasöfn kirkna og biskupsstóla, sem varðveitt eru í Þjóðskjalasafni, eru um 360 hillumetrar og ná frá tólftu öld til samtímans. Á árunum 1985-1990 endurskráði Björk Ingimundardóttir skjalavörður skjalasöfn presta og prófasta og vann jafnframt að rannsóknum á söfnunum. Markmiðið var ekki síst að benda á fjölþætta möguleika til þess að nýta skjalasöfn kirkjunnar í heild, rannsaka þau og vekja athygli á skjölunum sem grundvallarheimild um fjölmörg svið samfélagsins. Auk skjalaskrárinnar sjálfrar var verkefnið rannsókn á því hvar mörk sókna, prestakalla og prófastsdæma lágu og hvernig þau hafa breyst í aldanna rás. Sú rannsókn birtist hér í tveimur bindum. Björk Ingimundardóttir fæddist árið 1943 á Hæli í Flókadal og er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún starfaði á Þjóðskjalasafni 1971-2013 og hefur komið að útgáfu fjölda bóka, þar má nefna fyrsta bindi Yfirréttarins á Íslandi, Skjalasafn landfógeta 1695-1904 og Byggðir Borgarfjarðar. Árið 2011 var Björk gerð að heiðursfélaga í Sagnfræðingafélagi Íslands.

Vöruflokkur

    Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2019
  • Útgefandi: Sögufélag
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir