Ísland í Eyjahafinu
| Verð: | 5.699 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Í sjálfstæðisbaráttunni þurftu Íslendingar að ná máli sem fullgild menningarþjóð. Þeir litu þá ekki síst til sögufrægra þjóða eins og Forn-Grikkja um fyrirmyndir. Sigurður Guðmundsson málari setti á svið atriði úr eddukvæðum og fornsögum sem sýndu hetjur í hellenskum stíl. Benedikt Gröndal blandaði saman grískum og íslenskum minnum í skrifum sínum og félagar í Kvöldfélaginu æfðu klassíska mælskulist í kappræðum um þjóðmál. Íslendingar lærðu einnig af öðrum þjóðum að lofsyngja landið í ættjarðarljóðum sem urðu að æðstu tjáningu íslensks þjóðernis. Þannig reynist hið þjóðlega oft vera af alþjóðlegum rótum runnið.
Í bókinni er fjallað um þessa og aðra þætti í menningarviðleitni Íslendinga frá 18. og fram á 20. öld. Sveinn Yngvi Egilsson er prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2019
- Útgefandi: Hið ísl. bókmenntafélag
- Blaðsíðufjöldi: 243
