Endurfundir á Brideshead
| Verð: | 4.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Skólavörðustígur
Höfundur
Vörulýsing
Þegar lávarðurinn ungi, Sebastian Flyte, kastar upp inn um gluggann hjá Charles Ryder á heimavistinni í Oxford-háskóla, hugsar Charles með sjálfum sér að hann hefði betur farið að ráðum frænda síns sem varaði hann við því að velja sér herbergi á jarðhæð. En enginn stenst óviðjafnanlega persónutöfra Sebastians. Charles laðast að honum og hinum seiðandi heimi fjölskyldu Sebastians á Brideshead-setri og líf hans varð aldrei samt. Endurfundir á Brideshead var valin ein af 100 bestu skáldsögum heims af tímaritinu Time. Hún er vinsælasta bók enska stílsnillingsins Evelyns Waughs sem jafnan er talinn meðal fremstu höfunda enskra bókmennta á tuttugustu öld. Helstu verk hans, auk Endurfunda á Brideshead, eru A Handful of Dust, Decline and Fall, The Loved One og Sword of Honour-þrílógían. Endurfundir á Brideshead er fyrsta bók Evelyns Waughs sem kemur út á íslensku. Hjalti Þorleifsson íslenskaði.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk - þýdd - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2019
- Útgefandi: Ugla útgáfa ehf
- Blaðsíðufjöldi: 480
