Víkingar og væringjar
| Verð: | 4.259 ISK |
Penninn Eymundsson
- Ísafjörður
Höfundur
Vörulýsing
Víkingaöldin er eitt áhugaverðasta og merkasta tímabilið í gjörvallri sögu Norðurlanda. Hún stóð frá því skömmu fyrir aldamótin 800 og fram á síðari hluta elleftu aldar. Á víkingaöld urðu Norðurlandabúar hlutgengir Evrópumenn. Þeir fóru í víkingaferðir til Bretlandseyja, Frakklands, suður í Miðjarðarhaf, austur til Rússlands og Svartahafs, fundu og námu ný lönd í Norður-Atlantshafi Færeyjar, Ísland og Grænland og sigldu allt vestur til Ameríku. Margir Norðurlandabúar,þeirra á meðal nokkrir Íslendingar, gengu í þjónustu keisarans í Miklagarði (Konstantínópel, nú Istanbúl), voru hermenn hans og lífverðir. Þeir voru nefndir Væringjar.
Í þessari fróðlegu og læsilegu bók rekur Jón Þ. Þór meginþætti í sögu víkingaaldar, lýsir herferðum víkinganna, landkönnun og landafundum,
kaupferðum og myndun kaupstaða og konungsríkja á Norðurlöndum.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Urður bókafélag
- Blaðsíðufjöldi: 173
