Utangátta
| Verð: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Ísafjörður
Höfundur
Vörulýsing
Það sem þessi bók hefur fram að færa, er fyrst og fremst það að það gefa innsýn í heim samkynhneigðra einstaklinga á Íslandi. Hvernig það er að uppgötva að vera samkynhneigður, hvernig aðrir taka því, s.s. fjölskylda, ættingjar, vinir og vinnufélagar og hvaða áhrif slíkt hefur á makaleit þeirra. Fjallað er um hugmyndir þeirra og upplifanir varðandi að gefa sig saman,
heimilisstörf og barneignir sem eðli málsins samkvæmt er flóknara fyrir samkynhneigða en gagnkynhneigða. Einnig er fjallað um hugmyndir þeirra varðandi trúarbrögð, þar sem trúarbrögð hafa fordæmt samkynhneigð og ekki er langt síðan samkynhneigðum var bannað að gifta sig í kirkju. Fjallað er um fordóma sem viðmælendur hafa upplifað vegna kynhneigðar sinnar, Samtökin ´78 og hlutverk þeirra og að lokum er horft stuttlega til framtíðar í lokakafla. Skrifað hefur verið áður um samkynhneigð hér á landi en aðallega út frá sjónarhóli fræðinnar, ekki mikið út frá rannsóknum. Það sem gerir þessa bók sérstakt eru raddir samkynhneigðra sem fræðilegur rammi er settur utan um með tilvísunum í fræði þegar það á við. Því má bæta við að til að
draga úr fordómum er fræðsla mikilvæg. Þar sem sjálfsvígstíðni er meiri meðal samkynhneigðra en annarra, er afar brýnt að almenningur hafi aðgang að fræðslu, svo foreldrar, kennarar og aðrir geti stutt við bakið á þeim sem eru samkynhneigðir á meðan við lifum í veruleika sem tekur mið af gagnkynhneigð.
Freydís Jóna Freysteinsdóttir
Utangátta:
Það leikur sér enginn að því
að vera samkynhneigður
Félagsvísindastofnun
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2020
- Blaðsíðufjöldi: 176
