Aprílsólarkuldi
| Verð: | 4.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Aprílsólarkuldi lýsir föðurmissi Védísar, skólastúlku sem er einstæð móðir; ástinni kemur næstum jafn óvænt og ferlinu inn í sjúkdóm, öllu í einni augnablikseilífð. Reykjavík og hennar fólk fær á sig sérstakan blæ með lýsingum í ekta Elísabetarstíl sem hér er djúptær, litaður flæði og frelsi ljóðsins.
Hún kann að láta húsin lifna og anda líkt og landslag, líka bilið á milli þeirra. Hvergi skortir skarpskyggni né húmor í mannlýsingum, lituðum af tíðaranda í lok áttunda áratugarins: einn og annar Kristjaníufari kominn heim, hasspartí hvunndagsmatur og farið að draga úr hippalátum 68-kynslóðarinnar; nú á að fóta sig í frelsinu.
Hvað gerist milli fólks þegar orðin bregðast? Glata merkingunni. Þegar tengslin við tungumálið bresta, hvað er þá til ráða? ... því heimurinn mun ekki standa nema vegna merkingar, annars mun hann sáldrast niður og manneskjan getur annars ekki lifað í heiminum, segir í sögunni.
Upprunalega ætlaði Elísabet Jökulsdóttir að skrifa bók um föður sinn, leikskáldið Jökul Jakobsson, en þegar leið á skrifin varð hún innblásin af sambandinu sem hún hafði við föður sinn og fannst hún verða að segja þessa sögu.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 196
