Snerting
| Verð: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Kristófer hyggst loka veitingastað sínum í miðbæ Reykjavíkur vegna veirunnar, eftir áratuga farsælan rekstur. Sama dag berst honum óvænt vinarbeiðni á Facebook og tíminn nemur staðar. Það er líkt og áratugirnir gufi upp og hann hverfi aftur um fimmtíu ár, standi við læstar dyr um morgun í London þegar hann uppgötvaði að þau voru farin.
Hann leggur af stað í ferð yfir þveran hnöttinn. Og um leið heldur hann á vit minninga um ástir, fornar og nýjar, leynd og eftirsjá eftir því sem hefði getað orðið, hugsjónir og veruleika, en undir kraumar spurning sem hefur leitað á hann í hálfa öld: Hvers vegna fóru þau án þess að kveðja?
Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er áhrifamikil skáldsaga sem gerist í Reykjavík og Tókýó samtímans og London á sjöunda áratugnum. Hér sýnir hann allar sínar bestu hliðar í glæsilega skrifaðri sögu sem rígheldur lesanda allt til óvæntra endaloka.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Bjartur Veröld
- Blaðsíðufjöldi: 350
