Farsæl skref í fjármálum
| Verð: | 5.599 ISK |
Penninn Eymundsson
- Kringlan Suður
Höfundur
Vörulýsing
Ný bók um fjármál einstaklinga Framtíðarsýn gefur út bókina Farsæl skref í fjármálum eftir Gunnar Baldvinsson. Í henni er farið yfir helstu hugtök og aðferðir til að beita við daglega fjármálastjórn, val á sparnaðarleiðum, lántöku og við að undirbúa stóru fjárhagslegu ákvarðanirnar í lífinu. Bókin er skrifuð sem kennslubók fyrir framhalds og háskóla en getur einnig gagnast sem uppflettibók um fjármál einstaklinga. Gylfi Magnússon, prófessor í fjármálum, skrifar inngangsorð .
Bókin er sjálfstætt framhald bókarinnar Fyrstu skref í fjármálum Úr inngangsorðum Gylfa Magnússonar prófessors í
fjármálum og forseta Viðskiptafræðideildar HÍ Bókin er skrifuð fyrir fullorðna og ætti að geta nýst flestum vel, hvort sem þeir hafa grunnþekkingu á fjármálum og viðskiptum eða ekki. Eins og fyrri bækur Gunnars er þessi aðgengileg og lesendur þurfa ekki leiðsögn kennara til að tileinka sér efnið. Hún getur þó án efa nýst ágætlega sem kennsluefni, til dæmis fyrir
háskólanema. Bókin er kærkomin viðbót við lesefni um fjármál heimila og ekki hægt annað að vona að sem flestir lesi sér hana
til gagns. Það væri líklega ein besta fjárfesting sem þeir eiga kost á!
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2020
