Fléttur V - MeToo
| Verð: | 5.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Vörulýsing
Fimmta hefti ritraðar RIKK er tileinkað #MeToo og baráttu kvenna gegn áreitni og ofbeldi. Í greinunum er viðfangsefnið skoðað frá fjölbreyttum sjónarhornum. Fjallað er um hvernig hræðsla eða ótti kvenna við kynferðisofbeldi birtist í íslenskum bókmenntum, #MeToo sett í sögulegt samhengi, annars vegar innan kvenréttindahreyfingarinnar sem hlekkur í keðju átaka og umróts þar sem kvenlíkaminn er í forgrunni og hins vegar er aðferðum munnlegrar sögu beitt til að skoða kynferðislega áreitni og ofbeldi gegn ráðskonum á síðari hluta 20. aldar. Einnig er fjallað um áhrif kynjamisréttis á heilsu kvenna þar sem frásagnir kvenna af samskiptum sínum við lækna eru skoðaðar, meðal annars út frá bókmenntalegri nálgun, og sjónum beint að þeim heilsufarsvandamálum sem fylgja kynferðisofbeldi og mikilvægi samstöðu, eins og konur upplifðu í #MeToo, í bataferlinu. Sýn ungra karlmanna á kynheilbrigði og #MeToo er einnig tekin til umfjöllunar. Jafnframt er fjallað um margþætta mismunum, bæði út frá sálrænum afleiðingum hennar fyrir fatlaðar konur og svo því kerfisbunda misrétti sem konur af erlendum uppruna á Íslandi upplifa, stöðu og samstöðu þeirra í #MeToo-byltingunni. Loks er fjallað um #MeToo út frá heimspekilegu sjónarhorni, kannað er hvort #MeToo bjóði upp á möguleika á breyttum mannskilningi og lausn undan hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar og svo er bakslagið við #MeToo tekið til greiningar.
Fléttur er ritröð RIKK Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Fléttum er ætlað að kynna niðurstöður jafnréttisrannsókna og koma á framfæri fræðilegum greinum um kvenna- og kynjafræði, femínisma og jafnréttismál í víðum skilningi.
Ritstjórar: Elín Björk Jóhannsdóttir, Kristín I. Pálsdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2021
- Útgefandi: Háskólaútgáfan
- Blaðsíðufjöldi: 270
